08.02.22 - 12:10
Elvar Geir Magnússon
Ari Sigurpáls í Víking (Staðfest)

Frá undirskriftinni í dag.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Frá undirskriftinni í dag.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ari Sigurpálsson er genginn í raðir Íslands- og bikarmeistara Víkings frá Bologna á Ítalíu. Hann var kynntur á fréttamannafundi í hádeginu.
Hann gerir samning við Víking út tímabilið 2024.
„Ari er mættur til landsins og hefur hafið æfingar hjá Víkingi. Víkingur bindur miklar vonir við Ara sem bætist nú í hóp þeirra ungu og spennandi leikmanna sem Víkingur hefur samið við undanfarin ár," segir í tilkynningu Víkings.

Ari er átján ára vinstri kantmaður sem uppalinn er í HK. Hann fór fyrst til Bologna tímabilið 2019/20, var á láni en Bologna keypti hann svo um vorið.
Ari lék svo í kjölfarið með HK á láni í Pepsi Max-deildinni það sumarið.
Hann á að baki 24 unglingalandsleiki og hefur í þeim skorað þrjú mörk. Ari verður nítján ára í mars.
Samningur Ara við Bologna átti að renna út í sumar og kaupir Víkingur því leikmanninn af Bologna.
Viðtal við Ara birtist hér á Fótbolta.net síðar í dag.