Fotbolti.net
08.02.22 - 20:49
Brynjar Ingi Erluson

Ásgeir Frank í Aftureldingu (Staðfest)

Ásgeir Frank er mættur í Mosfellsbæinn

Ásgeir Frank er mættur í Mosfellsbæinn

Canon

Mynd: UMFA

Lengjudeildin
Ásgeir Frank Ásgeirsson er genginn í raðir Aftureldingar frá Kórdrengjum en hann skrifaði undir samning við félagið í dag. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Aftureldingu.
Ásgeir, sem er 25 ára gamall, er uppalinn í Víking Reykjavík, en hann steig sín fyrstu skref með meistaraflokki félagsins árið 2014 áður en hann hélt til BÍ/Bolungarvíkur árið 2015.

Hann hefur spilað með Kórdrengjum frá 2017 og hjálpaði liðinu að komast úr 4. deild og upp í næst efstu deild.

Ásgeir fer nú í nýtt ævintýri en hann gerði í dag samning við Aftureldingu og mun spila með liðinu í Lengjudeildinni á komandi tímabili. Hann á 133 leiki og 13 mörk að baki í deild- og bikar.

„Mér fannst vera kominn tími á nýja áskorun og ég held að það sé frábært að koma í Aftureldingu. Ég er búinn að heyra góða hluti um klúbbinn. Ég spilaði á móti þeim í fyrra þar sem þeir voru mjög góðir og þetta er frábært," sagði Ásgeir Frank við undirskrift.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.