Fotbolti.net
08.02.22 - 06:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Bandarískur varnarmaður til Grindavíkur (Staðfest)

Bandarískur varnarmaður til Grindavíkur (Staðfest)
Canon

Mynd: Montana

Kvennaboltinn
Grindavík hefur samið við Caitlin Rogers og mun hún spila með liðinu í Lengjudeildinni í sumar.

Caitlin er 22 ára gömul og leikur í stöðu miðvarðar. Hún kemur frá Bandaríkjunum, lék með University Of Montana og var meðal annars fyrirliði liðins í bandaríska háskólaboltanum
„Caitlin er öflugur varnarmaður með leiðtogahæfileika og er mikill karakter. Ég er þess fullviss um að hún styrkir okkar lið í öftustu víglínu,“ sagði Jón Óli Daníelsson, þjálfari Grindavíkur.

Caitlin er væntanleg til Íslands í lok febrúar þegar Lengjubikar kvenna fer af stað. Caitlin og Mimi Eiden, sem samdi nýverið við Grindavík, léku saman hjá Montana og þekkjast því vel.

Heimild: Grindavík

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.