Fotbolti.net
08.02.22 - 06:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Margrét Regína í KR - Björk og Gígja komnar frá HK (Staðfest)

Margrét Regína í KR - Björk og Gígja komnar frá HK (Staðfest)
Canon

Mynd: KR

Kvennaboltinn
Margrét Regína Grétarsdóttir hefur skrifað undir tveggja ára samning við KR. Margrét Regína (1993) byrjaði í fótbolta hjá BÍ/Bolungarvík og spilaði sinn fyrsta meistaraflokksleik með félaginu aðeins 14 ára gömul.

Frá Ísafjrarðadjúpi lá leiðin í Fram í Reykjavík þar sem hún spilaði einnig með sameinuðu liði Fram og Aftureldingar og Aftureldingu.
„Margrét Regína er öflugur leikmaður með góða reynslu og er núna að spreyta sig í fyrsta sinn í efstu deild kvenna," segir í tilkynningu KR.

KR hefur styrkt sig enn frekar því þær Gígja Valgerður Harðardóttir og Björk Björnsdóttir eru mættar til félagsins frá HK. Gígja (1991) varð Íslandsmeistari með Þór/KA árið 2012 og hefur einnig spilað með Völsungi, Val, HK/Vikingi og HK á sínum ferli.

Björk er fædd árið 1989 og hefur leikið 184 deildarleiki á ferlinum. Hún hefur leikið með HK, HK/Víkingi, Val og Fylki á sínum meistaraflokksferli.

KR vann Lengjudeildina á síðustu leiktíð og er mætt aftur í efstu deild eftir eins árs fjarveru.
Gígja Valgerður

Gígja Valgerður

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Björk Björnsdóttir

Björk Björnsdóttir

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.