08.02.22 - 10:34
Elvar Geir Magnússon
Teitur Magnússon úr FH í HK (Staðfest)

Teitur í leik með Þrótti í fyrra.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Teitur í leik með Þrótti í fyrra.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Varnarmaðurinn Teitur Magnússon er genginn í raðir HK sem féll úr efstu deild á síðasta ári.
Teitur er tvítugur miðvörður sem er uppalinn hjá FH en fór til OB í Danmörku sumarið 2019. Hann sneri heim snemma á siðasta ári.
Teitur er tvítugur miðvörður sem er uppalinn hjá FH en fór til OB í Danmörku sumarið 2019. Hann sneri heim snemma á siðasta ári.
Hann gekk þá í raðir FH en var lánaður til Þróttar þar sem hann lék sjö leiki í Lengjudeildinni í fyrra. Hann lék einnig á láni hjá Þrótti sumarið 2018.
Teitur, sem á 20 landsleiki fyrir yngri landslið Íslands, lék með HK í Fótbolta.net mótinu og hefur nú fengið félagaskipti í Kópavoginn.
HK hafnaði í ellefta sæti Pepsi Max-deildarinnar í fyrra.
Teitur, sem á 20 landsleiki fyrir yngri landslið Íslands, lék með HK í Fótbolta.net mótinu og hefur nú fengið félagaskipti í Kópavoginn.
HK hafnaði í ellefta sæti Pepsi Max-deildarinnar í fyrra.
