Fotbolti.net
08.02.22 - 14:48
Elvar Geir Magnússon

Villa lánar Trezeguet til Tyrklands (Staðfest) - Bailey nálgast endurkomu

Trezeguet er 27 ára vængmaður.

Trezeguet er 27 ára vængmaður.

Canon

Mynd: Getty Images

Egypski landsliðsmaðurinn Trezeguet er genginn í raðir tyrkneska félagsins Istanbul Basaksehir á lánssamningi út tímabilið frá Aston Villa.

„Trezeguet lenti í erfiðum meiðslum á síðasta ári en mætti aftur til leiks í síðasta mánuði og mun nú fá dýrmætan spiltíma seinni hluta tímabils," segir í tilkynningu Villa.

Aston Villa mætir Leeds United annað kvöld en Steven Gerrard, stjóri Villa, er ánægður með þann liðsstyrk sem félagið hefur fengið í janúrglugganum.
„Frá okkar sjónarhóli var glugginn mjög jákvæður. Við fengum öfluga leikmenn og mér finnst hópurinn á mun betri stað," segir Gerrard.

Gerrard sat fyrir svörum á fréttamannafundi í dag en þar sagði hann að vængmaðurin Leon Bailey væri að snúa aftur úr meiðslum sem hafa haldið honum utan vallar síðan í desember.

„Hann er mikilvægur leikmaður. Hann er bara nokkrum dögum frá því að vera valinn í hópinn, leikurinn á morgun kemur of snemma," segir Gerrard.
Leon Bailey.

Leon Bailey.

Canon

Mynd: Getty Images

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.