Fotbolti.net
08.03.14 - 08:00
Hafliði Breiðfjörð

Hulda Ósk Jónsdóttir í KR (Staðfest)

Hulda Ósk í nýja KR búningnum.

Hulda Ósk í nýja KR búningnum.

Canon

Mynd: Vefur KR

Kvennaboltinn
Hulda Ósk Jónsdóttir hefur gengið til liðs við KR. Hún kemur frá Völsungi.
Hulda er á yngsta árinu í 2. flokki en hefur þegar leikið 17 leiki með mfl. Völsungs í deild og bikar og skorað níu mörk.

Hún hefur einnig leikið þrjá leiki með U16-landsliðinu og skorað fimm mörk í 12 leikjum með U17-landsliðinu.

Hulda var nýlega valin í U19-landsliðið sem leikur við Finna í næstu viku.

Hulda var valin íþróttamaður Húsavíkur árið 2013.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.