08.03.16 - 11:00
Magnús Már Einarsson
Brynjar Ásgeir tekinn við ÍH (Staðfest)

Brynjar Ásgeir Guðmundsson.

Mynd: Fótbolti.net - J.L.

Brynjar Ásgeir Guðmundsson.

Mynd: Fótbolti.net - J.L.
Brynjar Ásgeir Guðmundsson, leikmaður FH, hefur verið ráðinn þjálfari ÍH í 4. deildinni.
ÍH endaði í 3. sæti í 4. deildinni í fyrra en þá þjálfaði Ómar Freyr Rafnsson liðið.

„Ég er bara ánægður með að geta hjálpað til, það átti eftir að finna þjálfara og ég þekki vel til í félaginu og ákvað að taka þetta að mér. Stefnan er svo að sjálfsögðu sett á að koma liðinu upp um deild,\" sagði Brynjar Ásgeir við Fótbolta.net í dag.
Hinn 23 ára gamli Brynjar Ásgeir fótbrotnaði í desember og hefur verið frá keppni síðan þá. Brynjar er á góðum batavegi og verður kominn á fulla ferð með FH áður en Pepsi-deildin hefst.
„Mér líður mjög vel í líkamanum og ég sé fram á að vera kominn á fullt með liðinu í lok mánaðar. Róbert Magnússon sjúkraþjálfari hefur hjálpað mér heilmikið og á ég honum mikið að þakka,\" sagði Brynjar.