Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mán 08. mars 2021 20:24
Victor Pálsson
Einkunnir Chelsea og Everton - Gylfi fær fimm
Mynd: Getty Images
Kai Havertz var valinn maður leiksins í kvöld þegar Chelsea vann 2-0 sigur á Everton í ensku úrvalsdeildinni.

Havertz átti stóran þátt í báðum mörkum Chelsea sem vann afar sterkan sigur í Meistaradeildarbaráttunni.

Sky Sports valdi þessa einkunnagjöf og fær Havertz átta í einkunn fyrir sína frammistöðu.

Gylfi Þór Sigurðsson lék 70 mínútur fyrir Everton en hann fær fimm í einkunn fyrir sitt framlag.

Chelsea: Mendy (6), Azpilicueta (7), Christensen (7), Zouma (7), James (7), Jorginho (7), Kovacic (7), Alonso (7), Hudson-Odoi (7), Havertz (8), Werner (6).

Varamenn: Mount (6), Kante (5)

Everton: Pickford (5), Godfrey (5), Keane (6), Holgate (5), Digne (6), Allan (6), Gomes (6), Iwobi (5), Sigurdsson (5), Richarlison (5), Calvert-Lewin (5).

Varamenn: King (5), Bernard (5), Davies (5)
Athugasemdir
banner
banner