Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 08. mars 2021 20:13
Victor Pálsson
Fernandes neitar að fagnið hafi verið fyrir gagnrýnendur
Mynd: Getty Images
Bruno Fernandes neitar því að hann hafi verið að svara gagnrýnendum með fagni sínu gegn Manchester City í gær.

Fernandes leikur með Manchester United og hélt fyrir eyrun á sér eftir að hafa skorað fyrra mark liðsins í 2-0 sigri í gær.

Man Utd vann ansi óvænt á Etihad vellinum en heimamenn í Man City höfðu ekki tapað leik í langan tíma.

Fernandes tjáði sig nýlega í viðtali þar sem hann svaraði þeim sem gagnrýndu frammistöðu hans í leikjum gegn 'stóru sex' liðunum.

Portúgalinn neitar að hafa verið að svara enn frekar fyrir sig og segir að fagnið hafi verið fyrir börnin sín sem horfa í sjónvarpinu.

„Í hvert skipti sem ég skora þá er það fyrir þau," sagði Fernandes í samtali við Sky Sports eftir leik.

Þetta var annað mark Fernandes gegn einu af 'stóru sex' liðunum á tímabilinu.
Athugasemdir
banner
banner
banner