08.03.21 - 12:09
Magnús Már Einarsson
Sagt að Everton ætli að hlusta á tilboð í Gylfa

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Football Insider segir frá því í dag að Everton sé tilbúið að hlusta á tilboð í Gylfa Þór Sigurðsson í sumar.
Gylfi verður 32 ára síðar á þessu ári en samningur hans við Everton rennur út árið 2022.
Sagt er að Everton sé tilbúið að selja Gylfa í sumar frekar en að missa hann frítt eftir ár.

Gylfi hefur skorað sex mörk og lagt upp níu í 32 leikjum með Everton á þessu tímabili.
Gylfi kom til Everton frá Swansea á 45 milljónir punda árið 2017 en hann varð um leið dýrasti leikmaðurinn í sögu félagsins.