Íslenski landsliðsvarnarmaðurinn Ragnar Sigurðsson lék sinn fyrsta leik fyrir Rukh Lviv í úkraínsku úrvalsdeildinni í dag.
Rukh tapaði 0-4 á heimavelli sínum gegn Desna sem komst upp í fjórða sætið með sigrinum.
Ragnar var í byrjunarliðinu og lék fyrri hálfleikinn. Staðan var 0-2 í hálfleik.
Rukh Lviv er í tólfta sæti úkraínsku deildarinnar af fjórtán liðum deildarinnar, þrjú lið eru með 13 stig í sætum 11-13 og liðið neðsta sæti er svo með 12 stig.

Ragnar gekk í raðir Rukh Lviv fyrr á árinu, frá FC Kaupmannahöfn.
Hann er lykilmaður í íslenska landsliðinu sem mun síðar í þessum mánuði hefja leik í undankeppni HM.
Athugasemdir