Arsenal endurnýjar áhuga á Luiz - Man Utd reynir við Todibo - Tottenham vill Sudakov
   mán 08. mars 2021 21:17
Victor Pálsson
Souness vildi meira frá Bale - „Áhugalaus á bekknum"
Mynd: Getty Images
Graeme Souness, fyrrum leikmaður Liverpool, bjóst við meiru af sóknarmanninum Gareth Bale sem kom aftur til Tottenham í fyrra.

Bale var lánaður til Tottenham frá Real Madrid í sumarglugganum en hefur ekki náð að festa sig í sessi.

Bale átti þó góðan dag í gær þegar Tottenham vann Crystal Palace 4-1 og skoraði hann tvö mörk í sigrinum.

Souness bjóst við meiru frá Bale og ásakar hann um áhugaleysi á varamannebkknum fyrr á tímabilinu. Bale hefur þó skorað sex mörk og lagt upp önnur þrjú í síðustu sex keppnisleikjum.

„Við ræddum um hann fyrir nokkrum vikum. Ef ég væri hann þá væri ég bankandi á dyrnar hjá stjóranum og segði honum að ég væri tilbúinn," sagði Souness.

„Við fáum myndir af honum sitjandi á bekknum og hann virkar áhugalaus og er að grínast með varamönnunum."

„Það eru 11 leikir eftir og hann hefur verið hér allt tímabilið. Ég bjóst við meiru. Ég er mikill aðdáandi Bale þegar hann spilar fótbolta en vil fá að sjá meira."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner