08.03.22 - 14:29
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Afturelding fær Andi Hoti frá Leikni (Staðfest)

Andi Hoti í leik með Leikni árið 2020.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Andi Hoti í leik með Leikni árið 2020.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Varnarmaðurinn Andi Hoti er genginn í raðir Aftureldingar á láni frá Leikni út komandi tímabil í Lengjudeildinni.
Andi er átján ára gamall og hefur leikið upp alla yngri flokkana hjá Leikni og lék sína fyrstu meistaraflokksleiki með liðinu sumarið 2020.
Andi er átján ára gamall og hefur leikið upp alla yngri flokkana hjá Leikni og lék sína fyrstu meistaraflokksleiki með liðinu sumarið 2020.
Á síðasta tímabili var hann á láni hjá Þrótti R. og lék fimmtán leiki í Lengjudeildinni.
Hann á að baki fjóra leiki fyrir U19 ára landsliðið.
Andi ræddi við Þorgeir Leó Gunnarsson og má sjá viðtalið hér að neðan.
Hann á að baki fjóra leiki fyrir U19 ára landsliðið.
Andi ræddi við Þorgeir Leó Gunnarsson og má sjá viðtalið hér að neðan.
„Mér líst mjög vel á þetta. Þetta er mjög flottur hópur, strákar sem eru góðir í fótbolta og góðir þjálfarar líka. Ég er mjög spenntur fyrir sumrinu," sagði Andi í viðtali við @thorgeirleo eftir undirskrift. pic.twitter.com/mfAFse7VxM
— Afturelding (@umfafturelding) March 8, 2022
