08.03.22 - 06:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Aron Bjarki í Völsung (Staðfest) - Hélt hreinu í fyrsta leik

Mynd: Völsungur - Hafþór Hreiðarsson

Mynd: Völsungur - Hafþór Hreiðarsson
Völsungur lék á sunnudag sinn fyrsta leik í Lengjubikarnum þetta tímabilið. Völsungur leikur í B-deild, í riðli 4.
Sigur vannst í fyrsta leik, á PCC vellinum á Húsavík.
Adolf Mtasingwa Bitegeko skoraði eina mark leiksins gegn KF og kom það á 82. mínútu eftir óbeina aukaspyrnu.

Í liði Völsungs var nýr leikmaður að spila sinn fyrsta leik fyrir félagið.
Það var Aron Bjarki Kristjánsson , hann er markvörður sem varði mark Kára á síðasta tímabili.
Hann kom upp í gegnum yngri flokkana hjá ÍA en er ættaður frá Húsavík.
„Við bjóðum Aron Bjarka Kristjánsson velkominn í grænt og ekki er byrjunin amaleg, að halda hreinu!" segir í færslu Græna hersins á Facebook.