Fotbolti.net
08.03.22 - 11:20
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Birgitta og Irma til Grindavíkur (Staðfest)

Birgitta Hallgríms

Birgitta Hallgríms

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
Grindavík greindi frá því á dögunum að Brigitta Hallgrímsdóttir væri búin að skrifa undir amning við félagið. Birgitta er framherji og kemur til liðs við Grindavík frá Omonoia á Kýpur þar sem hún lék í vetur.

Birgitta lék með Grindavík tímabilin 2019 og 2020. Hún var iðin við markaskorun hjá félaginu og skoraði alls 16 mörk í 16 leikjum með Grindavík árið 2020. Síðasta sumar lék Birgitta með Haukum og svo með Keflavík síðari hluta tímabilsins.

„Ég er ánægður að fá Birgittu til liðs við okkur. Hún styrkir okkar lið í fremstu víglínu og hefur staðið sig vel hér áður. Ég er spenntur að hefja samstarfið með henni,“ sagði Jón Ólafur Daníelsson, þjálfari Grindavíkur.
Þá greindi Keflavík frá því að markvörðurinn Irma Rún Blöndal, fyrirliði 2. flokks Keflavíkur, hefur verið lánuð til Grindavíkur. Hún er þó áfram gjaldgeng með 2. flokki Keflavíkur þar sem samstarf er á milli félaganna í þeim flokki.

„Irma Rún hefur staðið sig vel og verður gaman að fylgjast með henni í sumar vaxa en frekar sem leikmaður," segir í færslu Keflavíkur.

Arnhildur Unnur Kristjándóttir, Danieline Baquiran og Herdís Birta Sölvadóttir hafa einnig skipt yfir í Grindavík frá Keflavík í vetur.

Katrín Lilja Ármannsdóttir skipti í Grindavík frá Sindra á dögunum en hún er uppalin í Grindavík. Hún lék með Sindra í 2. deild í fyrra.
Irma Rún Blöndal

Irma Rún Blöndal

Canon

Mynd: Keflavík

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.