08.03.22 - 15:37
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
„Ekki okkur að þakka að Gunnar Heiðar er þjálfari Vestra í dag"

Eyjamaðurinn Gunnar Heiðar

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Samúel Samúelsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Eyjamaðurinn Gunnar Heiðar

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Samúel Samúelsson, meðstjórnandi í knattspyrnudeild Vestra, ræddi við Fótbolta.net í dag. Vestri réði á sunnudag nýjan þjálfara en félagið hafði verið án aðaþjálfara frá því Jón Þór Hauksson var ráðinn til ÍA í lok janúar.
Gunnar Heiðar Þorvaldsson var ráðinn þjálfari og skrifar undir samning út tímabilið með möguleika á árs framlengingu.
Sjá einnig:
Gunnar Heiðar: Láta hljóma eins og maður sé að fara til Úsbekistan

„Mér líst hrikalega vel á Gunnar Heiðar. Hann er stór karakter sem heillaði mikið, svo er hann eins og allir vita hokinn af reynslu í boltanum. Í þriðja lagi, þegar samtalið fór í að ræða um fótbolta þá sannfærðist ég af því hann hefur svipaðar skoðanir á því hvernig eigi að spila fótbolta og þeir sem eru í stjórn Vestra. Ég horfi ekkert alltof mikið í hans árangur hjá KFS en hann gerði augljóslega flotta hluti þar," sagði Sammi.
Af hverju kemur Gunnar Heiðar svona seint upp, mánuði eftir að leitin að eftirmanni Jóns Þórs hófst?
„Ég skal viðurkenna að það er ekki okkur að þakka að Gunnar Heiðar er þjálfari Vestra í dag. Svo þega við fórum að skoða hann og ræða við hann þá fannst okkur hann fullkominn í þetta."
Hverjum getið þið þakkað fyrir það að Gunnar Heiðar kom upp í leitinni?
„Án þess kannski að gefa upp nafn eða nöfn þá get ég sagt að ég fékk góðar ábendingar, frá góðum mönnum. Ég er þeim mjög þakklátur fyrir þær ábendingar, þeir vita hverjir þeir eru."
Eru þetta Eyjamenn? „Nei, þetta eru ekki Eyjamenn."
Seinna í dag verða birt áframhald á viðtalinu við Samma.