08.03.22 - 10:15
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Keflavík fær bandarískan markvörð (Staðfest) - NWSL meistari 2019

Mynd: Keflavík

Mynd: Keflavík

Keflavík er búið að finna markvörð í stað Tiffany Sornpao sem lék með liðinu í fyrra og átti glimrandi tímabil.
Til Keflavíkur er komin Samantha Leshnak og mun hún spila með liðinu í Bestu deildinni í sumar.

Samantha er markvörður og hefur átt mjög flottan feril til þessa. Hún spilaði m.a með University of North Carolina við góðan orðstír og lék í landsúrslitum fyrir skólann árið 2018.
Árið 2019 samdi hún við Bandaríska atvinnumanna og meistaraliðið North Carolina Courage og varð meistari með liði sínu í NWSL deildinni i Bandaríkjunum. Þá var hún varamarkvörður fyrir Stephanie Labbé en kom þó við sögu á tímabilinu.
„Við viljum bjóða Sam hjartanlega velkomna til Keflavíkur og búumst við miklu af henni á vellinum í sumar! Velkomin Samantha 💙" segir í færslu Keflavíkur.