08.03.22 - 21:41
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Selfoss semur við varnarmanninn Chris Jastrzembski (Staðfest)

Chris Jastrzembski.

Mynd: AHM Selfoss

Chris Jastrzembski.

Mynd: AHM Selfoss

Selfoss var að bæta við sig varnarmanni fyrir átökin í Lengjudeildinni í sumar.
Selfoss hefur samið við hinn 25 ára gamla Chris Jastrzembski. Chris er af pólskum ættum en fæddist í Þýskalandi og hefur búið þar nánast alla ævi.
Chris kemur til liðsins frá færeyska félaginu B68 Toftir. Áður en hann fór til Færeyja spilaði hann í neðri deildum Þýskalands með hinum ýmsu liðum.
Ég talaði við Dean (Martin) og fékk að æfa með liðinu. Mér leið strax vel hérna og allir voru tilbúnir að aðstoða mig og hjálpa mér að aðlagast. Þetta er ný áskorun fyrir mig sem ég er spenntur að takast á við, nýtt tungumál, nýtt land og nýtt fólk. Svo skemmir það ekki fyrir að veðrið hér er betra en í Færeyjum,” sagði Chris léttur í lund.
Hann á að baki landsleiki fyrir yngri landslið Póllands.
„Markmiðið mitt er að spila í Bestu deildinni á næstu tveimur árum og vonandi verður það með Selfoss. Ég vil vera fyrirmynd fyrir aðra leikmenn og hjálpa liðinu að spila góðan fótbolta,” sagði Chris að lokum.