Herrera með sýkingu í auga
Kylian Mbappe er í 24 manna leikmannahópi PSG fyrir seinni leik liðsins gegn Real Madrid. Hann er tæpur fyrir leikinn en hann hefur verið í meðhöndlun í vikunni eftir að Idrissa Gueye steig á hann á æfingu. Stuðningsmenn eru ekki sáttir við Gueye og má sjá af hverju neðst í fréttinni.
Sergio Ramos verður ekki með á morgun en hann glímir við meiðsli og æfir einn.
Sergio Ramos verður ekki með á morgun en hann glímir við meiðsli og æfir einn.
Ander Herrera æfir líka einn en hann er að glíma við sýkingu í auga. Hann mun byrja æfa með liðinu eftir leikinn gegn Real.
Stórleikurinn í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinanr fer fram á Santiago Bernabeu, heimavelli Real Madrid á morgun. Staðan í einvíginu er 1-0 fyrir PSG en það var Mbappe sem skoraði sigurmarkið undir lok leiks. Hann lék ekki með PSG gegn Nice í 1-0 tapi um helgina.
Apparently this is the tackle Idrissa Gueye gave to Mbappe. He's now a doubt in Wednesday clash with Real Madrid.
— The thinker man (@kwekuedilson) March 7, 2022
Gueye and his wife have had to turn off their Instagram replies and comments. pic.twitter.com/UitTwPZ8sI
Athugasemdir