Fotbolti.net
08.03.22 - 14:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Vienna Behnke í Fylki (Staðfest) - Erna Sólveig framlengir

Vienna Behnke í Fylki (Staðfest) - Erna Sólveig framlengir
Canon

Mynd: Fylkir

Kvennaboltinn
Vienna Behnke er gengin í raðir Fylkis og hefur samið við félagið út komandi keppnistímabil í Lengjudeildinni.

Vienna er reynslumikill vinstri kantmaður sem hefur spilað 71 leik fyrir Hauka í Lengjudeildinni. Í þeim leikjum hefur hún skorað 32 mörk. Í fyrra skoraði hún fjögur mörk í þrettán leikjum með Haukum.

Vienna verður 29 ára seinna í mánuðinum og kom til Hauka frá Bandaríkjunum fyrir tímabilið 2017.
„Vienna er frábær viðbót við okkar unga og efnilega lið og erum við gríðarlega spennt að fylgjast með henni á vellinum í sumar," segir í tilkynningu Fylkis.

Á dögunum var þá greint frá því að Erna Sólveig Sverrisdóttir hefði framlengt samning sinn við Fylki. Erna skrifar undir samning sem gildir út tímabilið 2024.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.