08.04.13 - 06:00
Hafliði Breiðfjörð
Nadia Lawrence til ÍBV (Staðfest) - Svava Tara frá út tímabilið

Kvennalið ÍBV verður mikið breytt næsta sumar en níu leikmenn eru farnir frá þeim.

Mynd: Eyjafréttir

ÍBV var að styrkja kvennalið sitt með leikmanni frá Wales en á sama tíma hefur félagið tilkynnt að Svava Tara Ólafsdóttir missir af komandi tímabili vegna meiðsla.
Sú welska heitir Nadia Lawrence og og er 23 ára gamall framherji. Hún kemur frá kvennaliði Cardiff City í heimalandinu. Hún lék sinn fyrsta landsleik fyrir Wales gegn Belgíu í vetur.
Svava Tara sem er 19 ára þurfti að fara í aðgerð þar sem liðband í hné var lagað eftir að hafa plagað hana í nokkur ár. Vegna þessa verður hún frá í 6 mánuði og missir því af komandi tímabili. Hún hefur spilað 46 leiki með ÍBV undanfarin ár og skorað í þeim þrjú mörk og á auk þess leiki að baki með U19 og U17 ára landsliðunum.
Lið ÍBV kemur mikið breytt til leiks á næsta tímabili eftir að hafa misst níu leikmenn. Þrjár hafa komið til félagsins, auk Lawrence þær Bryndís Jóhannesdóttir úr FH og Rosie Sutton sem kom frá Ástraíu. Þær Vesna Smiljcovic og Shaneka Gordon verða áfram með liðinu.
Þær sem félagið hefur misst eru Danka Podovac í Stjörnuna, Andrea Ýr Gústavsdóttir í Selfoss, Anna Þórunn Guðmundsdóttir og Elínborg Ingvarsdóttir í Grindavík, Hlíf Hauksdóttir í Val og Julie Nelson sem kemur ekki aftur. Þá er Berglind Björg Þorvaldsdóttir farin frá félaginu og þær Svava Tara og Kristín Erna Sigurlásdóttir missa af tímabilinu vegna meiðsla.