Fotbolti.net
08.04.16 - 17:00
Ívan Guðjón Baldursson

Hrannar Einarsson og sjö aðrir í Hamar (Staðfest)

Hrannar Einarsson lék með Fram í fyrrasumar.

Hrannar Einarsson lék með Fram í fyrrasumar.

Canon

Mynd: fram.is

Hamar í Hveragerði er heldur betur að bæta við leikmannahópinn fyrir átök sumarsins í 4. deildinni.

Hrannar Einarsson, sem lék 8 leiki fyrir Fram í 1. deildinni á síðasta tímabili, er genginn til liðs við félagið auk þriggja leikmanna sem léku með Elliða í 4. deildinni á síðasta tímabili.
Úr Elliða koma varnarmennirnir Stefán Víðir Ólafsson og Sigurður Jóhann Einarsson auk framherjans Páls Pálmasonar.

Sigmar Egill Baldursson er einnig kominn til félagsins úr KF og þá er kantmaðurinn Kaleb Goodmann, íslensk ættaður Bandaríkjamaður sem leikur á kantinum, búinn að skrifa undir samning.

Sigmar getur spilað í vörn og á miðju og lék hann 8 leiki fyrir KF í 2. deildinni síðasta sumar.

Þá eru tveir úr KR gengnir til liðs við félagið, þeir Sigurður Andri Jóhannsson og Sindri Snær Símonarson.

Heimild: Vefsíða Hamars

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.