08.04.16 - 14:31
Ívan Guðjón Baldursson
Jordan Tyler í Hött (Staðfest)

Jordan Tyler í leik með KF.

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Jordan Chase Tyler er genginn til liðs við Hött og mun leika með félaginu í 2. deildinni í sumar.
Jordan Tyler er fjölhæfur og getur spilað bæði sem miðjumaður og sóknarmaður.

Jordan spilaði fyrir Penn State háskólann í Bandaríkjunum árin 2010 og 2011 þar sem hann spilaði 21 byrjunarliðsleik, skoraði 7 mörk og lagði 5 upp.
Jordan spilaði fyrir KF í 2. deildinni í fyrra og skoraði þar 6 mörk í 19 leikjum er KF endaði í 7. sæti deildarinnar með 28 stig eftir 22 leiki.
Jordan þurfti að fara í aðgerð á krossbandi árið 2012 en kom sterkur til baka og gerði góða hluti árið 2013.
Það ár hjálpaði hann háskólanum sínum að vinna Big Ten titilinn þar sem hann gerði bæði mörk liðsins í 2-1 sigri í úrslitaleiknum gegn Northwestern University eftir framlengingu.

Heimild: gopsusports