Fotbolti.net
08.04.22 - 15:00
Ívan Guðjón Baldursson

Stefán Ingi í HK (Staðfest)

Stefán Ingi í HK (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Lengjudeildin

Stefán Ingi Sigurðarson mun leika með HK í Lengjudeildinni í sumar. Þessi 21 árs gamli sóknarmaður skoraði 3 mörk í 11 leikjum á láni hjá ÍBV í fyrra.

Stefán Ingi kemur á lánssamningi frá Breiðablik og mun aðeins spila fram í miðjan ágúst þegar hann snýr aftur til náms í Bandaríkjunum líkt og hann gerði í fyrra.

Stefán hefur skorað 8 mörk í 23 leikjum með ÍBV, Breiðablik og Grindavík síðustu ár en í 2. flokki var hann að skora eitt mark á leik að meðaltali.

„Það er virkilega ánægjulegt að fá Stefán Inga til liðs við HK og bjóðum við hann hjartanlega velkominn," segir á vefsíðu HK.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.