Fotbolti.net
08.05.13 - 13:44
Magnús Már Einarsson

Elvar Páll í Tindastól (Staðfest)

Elvar Páll í Tindastól (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Kristján Orri Jóhannsson

Tindastóll hefur fengið Elvar Pál Sigurðsson til liðs við sig á láni frá Breiðabliki.
Elvar Páll er uppalinn Bliki en hann hefur undanfarin tvö ár leikið á láni í fyrstu deildinni með ÍR og KA.

Þessi 21 árs gamli leikmaður getur spilað allar stöður framarlega á vellinum en í fyrra skoraði hann þrjú mörk í 14 leikjum með ÍR.

Árið 2011 var Elvar í láni hjá KA þar sem hann skoraði fimm mörk í 15 leikjum.

Í vetur hefur Elvar verið í skóla í Bandaríkjunum en hann er kominn með leikheimild með Tindastóli.

Elvar getur því leikið með Tindastóli gegn Leikni R. í fyrstu umferðinni í fyrstu deildinni á morgun en leikur liðanna hefst klukkan 14:00 á Leiknisvelli.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.