08.05.13 - 07:30
Elvar Geir Magnússon
Indriði Áki Þorláksson lánaður í Leikni (Staðfest)


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Sóknarmaðurinn efnilegi Indriði Áki Þorláksson hefur verið lánaður í 1. deildarlið Leiknis í Breiðholti frá Val. Indriði er fæddur 1995 og vakti athygli í Pepsi-deildinni í fyrra þegar hann skoraði fjögur mörk í sjö leikjum.
Hann hefur verið að glíma við meiðsli í vetur en hefur jafnað sig á þeim.
Hann hefur verið að glíma við meiðsli í vetur en hefur jafnað sig á þeim.
Indriði þekkir Frey Alexandersson, annan þjálfara Leiknis, vel en Freyr var aðstoðarþjálfari Vals í fyrra.
Leikmaðurinn hefur vakið athygli erlendra félagsliða en hann verður kominn með leikheimild þegar Leiknir fær Tindastól í heimsókn í 1. umferð 1. deildar á morgun.
Leikmaðurinn hefur vakið athygli erlendra félagsliða en hann verður kominn með leikheimild þegar Leiknir fær Tindastól í heimsókn í 1. umferð 1. deildar á morgun.
