08.05.13 - 18:00
Elvar Geir Magnússon
Jón Gísli Ström lánaður í ÍR (Staðfest)

Jón Gísli Ström í leik í Breiðholtinu.

Mynd: Fótbolti.net - Kristján Orri Jóhannsson

Jón Gísli Ström í leik í Breiðholtinu.

Mynd: Fótbolti.net - Kristján Orri Jóhannsson
Jón Gísli Ström hefur verið lánaður frá ÍBV til ÍR sem leikur í 2. deildinni. Jón Gísli er uppalinn hjá ÍR og féll með liðinu niður úr 1. deildinni í fyrra en hann gekk síðan í raðir ÍBV.
Fyrr á árinu gekkst hann undir aðgerð vegna kviðslits og var frá æfingum og keppni í nokkurn tíma.
Fyrr á árinu gekkst hann undir aðgerð vegna kviðslits og var frá æfingum og keppni í nokkurn tíma.
Jón Gísli var lykilmaður hjá ÍR og getur bæði leikið sem kantmaður og framherji. Hann hefur verið lánaður í Breiðholtið til að koma sér í leikæfingu.
ÍR mætir Gróttu á föstudag í 1. umferð 2. deildar.
ÍR mætir Gróttu á föstudag í 1. umferð 2. deildar.
