08.05.13 - 08:34
Hafliði Breiðfjörð
Sir Alex Ferguson hættir með Man Utd (Staðfest)

Takk fyrir og bless. Sir Alex Ferguson staðfestir að hann hættir með Manchester United.

Mynd: Getty Images

Manchester United hefur formlega staðfest að Sir Alex Ferguson sé að hætta með liðið. Hann mun starfa áfram fyrir félagið sem sendiherra félagsins og í stjórnandastöðu.
Á vef félagsins kemur fram að Ferguson muni hætta með liðið um leið og yfirstandandi tímabili lýkur en hann hefur stýrt liðinu í 26 ár.
Á þeim tíma hefur skotinn sem er 71 árs gamall unnið 38 titla, þar á meðal ensku úrvalsdeildina á þessari leiktíð. Hann tók við liðinu 6. nóvember 1986 af Ron Atkinson. Samtals vann hann deildina 13 sinnum, Meistaradeildina tvisvar, FA Cup fimm sinnum og deildabikarinn fimm sinnum.
,,Ákvörðuninum að hætta er eitthvað sem ég hef hugsað mikið um. Þetta er rétti tíminnn,\" sagði Ferguson.
,,Það var mikilvægt að yfirgefa félagið í sterkustu mögulegu stöðunni og ég tel mig hafa gert það.\"
,,Gæði þessa hóps sem vann deildina, og aldursbilið innan hans, hentar vel fyrir áframhaldandi árangur í sterkustu keppnum á sama tíma og unglingastarfið mun tryggja að langtíma framtíð félagsins sé björt.\"
,,Æfingaaðstaða okkar er með þeim bestu í heiminum og heimavöllur okkar, Old Trafford, er réttilega álitinn sem einn af helstu leikvöngum heims.\"
,,Þegar ég lít fram á veginn er ég ánægður með að taka að mér störf stjórnanda og sendiherra félagsins. Með þeim störfum, og mörgum öðrum áhugamálum mínum hlakka ég til framtíðarinnar.\"
,,Ég vil þakka fjölskyldu minni, ást þeirra og stuðningur hefur verið einstök. Cathy konan mín hefur verið lykilpersóna allan feril minn.\"
Ferguson er farsælasti knattspyrnustjórinn í sögu breskrar knattspyrnu en þegar best lét vann hann alla þrjá stóru titlana sama árið 1999, deildina, FA bikarinn og Meistaradeildina. Hann fer í aðgerð á mjöðm í sumar og talið er að það hafi lagt grunninn að þessari ákvörðun hans núna.
Veðbankar telja líklegast að David Moyes stjóri Everton taki við starfi hans á Old Trafford. Athygli vekur að Ferguson taki þessa ákvörðun núna því þegar leikskrá félagsins fyrir leikinn gegn Chelsea um síðustu helgi er lesin mátti sjá hið gagnstæða.
,,Ég hef allavega engin plön þessa stundina um að yfirgefa það sem ég tel vera einstakt,\" sagði hann þar en í dag staðfestir hann svo að vera að hætta. Orðrómur um þetta fór að berast á golfdegi milli leikmanna og þjálfara á Dunham Massey í Manchester í gær og nú hefur það verið staðfest.

Heimild: Vefur Man Utd

Mynd: Getty Images