Fotbolti.net
08.05.14 - 21:39
Gabríel Sighvatsson

Þorvaldur Örlygs í Pepsi-mörkin (Staðfest)

Þorvaldur Örlygs í Pepsi-mörkin (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Þorvaldur Örlygsson, þjálfari HK, hefur bæst í hóp séfræðinga í Pepsi-mörkunum en þetta kemur fram á Vísi í kvöld.

Pepsimörkin eru á dagskrá í kvöld klukkan 22:30 en Þorvaldur mun hins vegar þreyta frumraun sína í þættinum sem fer fram næstkomandi mánudagskvöld.
Hann mun segja skoðun sína á frammistöðu leikmanna í deildinni ásamt þeim Bjarnólfi Lárussyni, Hjörvari Hafliðasyni, Reyni Leóssyni og Tómasi Inga Tómassyni í sumar.

,,Ég er ekki kominn til þess að móðga menn eða hrista upp í. Ég mun segja mína skoðun og vonandi verða ekki alltaf allir sammála,\" sagði Þorvaldur við Vísi.

„Fótboltamenn verða að fá gagnrýni og auðvitað hrós líka. Þetta verður öðruvísi.\"

Þorvaldur þjálfaði Framara í Pepsi-deildinni frá 2008 og þar til í fyrra en hann stýrði Skagamönnum einnig síðari hlutann á síðasta tímabili.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.