08.05.16 - 10:30
Magnús Már Einarsson
Spænskur miðvörður í Víking Ó. (Staðfest)

Mynd: Víkingur Ó.

Mynd: Víkingur Ó.
Víkingur Ólafsvík hefur fengið varnarmanninn Alexis Egea í sínar raðir.
Alexis er fæddur 1987 og spilar sem miðvörður. Hann hefur komið víða við og spilaði áður í 2. deildinni í Mexíkó sem og í Guatemala.
Þá spilaði Alexis einnig með liði FC Torrevieja frá 2013 til ársins 2015.
„Alexis kemur til með að fylla skarð Admir Kubat sem sleit krossband fyrr í vetur. Við hjá Víking bjóðum Alexis velkominn til Ólafsvíkur,\" segir á heimasíðu Víkings.
Alexis er mættur til landsins en verður ekki kominn með leikheimild fyrir leikinn í dag gegn Val en verður líklegast í hópnum gegn ÍBV á fimmtudag.