Einherji frá Vopnafirði hefur fengið tvo leikmenn fra Ungverjalandi í sínar raðir fyrir 1. deild kvenna í sumar. Þær heita Bernadett Viktoria Szeles og Barbara Kopacs. Bernadett og Barbara spiluðu síðast í Rúmeníu. Þær gætu leikið með Einherja gegn Völsungi í 1. umferð Borgunarbikarsins í dag.