08.05.17 - 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Dagur Austmann og Ágúst Leó í Aftureldingu á láni (Staðfest)

Dagur Austmann spilaði með Aftureldingu á laugardaginn.

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Afturelding hefur fengið Ágúst Leó Björnsson og Dag Austmann Hilmarsson á láni frá Stjörnunni.
Báðir leikmennirnir léku sinn fyrsta leik í 5-1 tapi Aftureldingar gegn Völsungi í fyrstu umferðinni í 2. deildinni á laugardaginn.

Dagur Austmann spilaði nokkra leiki með Stjörnunni en hann kom aftur til Garðabæjarliðsins í vetur eftir að hafa búið í Danmörku undanfarin ár þar sem hann spilaði með AB.
Dagur er 18 ára miðju- og varnarmaður, en hann á að baki leiki með U19 og U17 ára landsliði Íslands.
Ágúst Leó er framherji en hann gekk upp úr 2. flokki síðastliðið haust. Hann skoraði ellefu mörk í átta leikjum með Skínanda árin 2014 og 2015 í Borgunarbikarnum og 4. deildinni.