Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
   fös 08. maí 2020 11:42
Elvar Geir Magnússon
Magnús Ingi í Hamar (Staðfest)
Magnús Ingi Einarsson.
Magnús Ingi Einarsson.
Mynd: Hamar
Magnús Ingi Einarsson hefur skipt yfir í Hamar og ætlar að taka sumarið með Hvergerðingum í 4. deildinni.

Magnús Ingi er 26 ára framherji sem hefur spilað 60 leiki með Selfoss en hann lék með liðinu í Pepsi-deildinni og Inkasso.

Hann hefur einnig spilað með Dalvík/Reyni, Herði Ísafirði og Árborg.

„Þetta er gríðarlega mikill liðstyrkur fyrir Hamar sem ætlar sér góða hluti í sumar," segir í tilkynningu frá Hamri.

Hamar komst í úrslitakeppni 4. deildarinnar í fyrra en tókst ekki að komast upp.
Athugasemdir
banner
banner