Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 08. maí 2021 09:15
Fótbolti.net
Íslenski boltinn og Atli Viðar á X977 í dag
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Tómas Þór og Elvar Geir verða á sínum stað með útvarpsþáttinn Fótbolti.net á X977 í dag milli 12 og 14 eins og alla laugardaga.

Þeir munu gera upp leik KR og KA þar sem Akureyrarliðið vann áhugaverðan sugur. Einnig er farið yfir fyrstu fjóra leiki Lengjudeildarinnar ásamt því að fréttir vikunnar verða skoðaðar.

Í seinni klukkutímanum verður Atli Viðar Björnsson, markahrókur og sérfræðingur á Stöð 2 Sport, sérstakur gestur. Meðal annars verður rætt um komandi leiki í Pepsi Max-deildinni.

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net er á X-inu alla laugardaga kl. 12-14. Umsjónarmenn þáttarins eru Tómas Þór Þórðarson og Elvar Geir Magnússon. Hægt er að finna þá á X samfélagsmiðlinum undir @tomthordarson og @elvargeir.

Smelltu hér til að hlusta á upptökur úr eldri þáttum.

Þú getur hlustað á X-ið á netinu með því að smella hérna

Athugasemdir
banner
banner
banner