Fotbolti.net
08.06.13 - 06:00
Hafliði Breiðfjörð

Mist Elíasdóttir í Breiðablik (Staðfest)

Mist Elíasdóttir í Breiðablik (Staðfest)
Canon

Mynd: Aðsend

Kvennaboltinn
Markvörðurin Mist Elíasdóttir hefur verið kölluð aftur í Breiðablik úr láni hjá Þrótti og er þegar komin með leikheimild með Blikunum.

Mist kemur til með að leysa stöðu Birnu Kristjánsdóttur markmanns Breiðabliks sem meiddist í síðasta leik gegn FH og verður lengi frá.
Mist stundaði frá árinu 2009 nám í USA og spilað með Florida Institute of Technology eða FIT panthers.

Áður en Mist fór erlendis í nám spilaði hún yfir 40 leiki í efstu deild með FH, Keflavík og ÍR.

Mist á að baki leiki með U17 og U19 landsliðum Íslands.

Hún er markvörður en hefur þó einnig einhverja reynslu sem útileikmaður einnig þegar hún lék með ÍR.

Mist gekk til liðs við Breiðablik í febrúar í fyrra en spilaði aðeins tvo leiki með liðinu í Pepsi-deildinni síðasta sumar. Hún spilaði fimm leiki með Þrótti í sumar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.