Fotbolti.net
08.06.13 - 21:42
Hafliði Breiðfjörð

Phil Neville leggur skóna á hilluna (Staðfest)

Phil Neville í dag. Hann er nú hættur í fótbolta.

Phil Neville í dag. Hann er nú hættur í fótbolta.

Canon

Mynd: Getty Images

Phil Neville fyrrverandi miðjumaður Manchester United, Everton og enska landsliðsins tilkynnti loksins formlega í kvöld að hann hafi lagt skóna á hilluna eftir 19 ára feril. Á þeim tíma vann hann ensku úrvalsdeildina sex sinnum og Meistaradeild Evrópu með Manchester United. Hann spilaði 59 landsleiki.
Neville tilkynnti í apríl að hann væri að hætta hjá Everton eftir átta ár hjá félaginu en vildi ekki staðfesta að hann væri hættur í fótbolta. Það gerði hann svo í kvöld en hann lék 505 leiki í ensku úrvalsdeildinni.

,,Ég var að tala við Robbie Fowler um þetta um daginn og hann hefur ekki lagt skóna formlega á hilluna,\" sagði Neville sem í dag er í þjálfarastarif með U21 ára liði Englands í Ísrael.

,,Fyrir þremur vikum síðan virtust allir í heiminum að leggja skóna á hilluna. Ég hugsaði \'ég er ekki að fara að stökkva á þennan vagn\'. ég vildi bara vera rólegur og hætta hljótt. Ég vildi ekki þessi læti.\"

,,Þegar ég kom með yfirlýsinguna um að ég væri að hætta hjá Everton virtust allir segja: \'Oh, þú hefur verið frábær\'. Mér líkaði ekki nógu vel við það því ég vildi ekki líta út fyrir að vera athyglissjúkur. Í hjarta mér vissi ég að ég myndi ekki spila aftur, ekki á neinum styrkleika. Ég vildi bara hverfa úr fótboltanum. Það sem ég mun sakna mest verður 4. júlí þegar Everton byrjar að æfa að nýju eftir sumarfrí. Ég elskaði alltaf þann dag og lifði fyrir hann, að hitta strákana aftur.\"


,,Konan mín veit hvernig ég er. Hún segir \'í guðanna bænum, ekki eiga meiri frítíma! Ég nýt þess að vera í fjölmiðlum en ég vil vinna, ég vil þjálfa, ég vil fá fleiri klukkutíma úti á grasinu. Ég á tvo möguleika, að fara í fjölmiðla eða út í þjálfun og knattspyrnustjórn. Ég er með tilboð íbáðu. Ég sest niður eftir mótið,\" sagði Neville ennfremar og átti við Evrópumót U21 árs landsliða þaðan sem Englendingar féllu svo út í kvöld.

Heimild: Sky

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.