Fotbolti.net
08.06.13 - 13:28
Hafliði Breiðfjörð

Silfurrefurinn Ravanelli tekur við Ajaccio (Staðfest)

Fabrizio Ravanelli.

Fabrizio Ravanelli.

Canon

Mynd: Getty Images

Silfurrefurin Fabrizio Ravanelli hefur verið ráinn þjálfari franska 1. deildarlðsins AC Ajaccio.
,,Fabrizio Ravanelli, heimsklassa leikmaður, er nýr þjálfari ACA,\" sagði franska félagið í yfirlýsingu í gær.

,,Hann hefur verið stjórnandi Juventus unglingaakademíunnar og varaliði þeirra.\"

Ravanelli sem er 44 ára gamall tekur við starfinu af Albert Emon sem hætti eftir að síðustu leiktíð lauk eftir að liðið rétt slapp við fall og endaði í fjórða neðsta sæti.

Hann spilaði með Juventus árin 1992-1996 og vann með liðinu Meistaradeild Evrópu á sínu síðasta ári þar.

Hann var síðar hjá Marseille 1997-1999, Lazio 199-2001, og svo á Englandi með Middlesbrough og Derby County.

Heimild: Reuters

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.