Fotbolti.net
08.06.20 - 19:00
Brynjar Ingi Erluson

Djordje Panic í Þrótt R. (Staðfest)

Djordje Panic í Þrótt R. (Staðfest)
Canon

Mynd: Þróttur R.

Knattspyrnudeild Þróttar R. staðfesti í dag komu Djordje Panic til félagsins en hann kemur frá þýska félaginu Bayern Alzenau.
Djordje er fæddur árið 1999 og uppalinn í Fjölni en hann á sjö landsleiki fyrir U16 ára landslið Íslands.

Hann gekk til liðs við Aftureldingu fyrir síðustu leiktíð og spilaði 13 leiki í Inkasso-deildinni og skoraði 1 mark.

Panic fór til Þýskalands eftir tímabilipð og spilaði með Bayern Alzenau í þýsku D-deildinni en er nú kominn heim og mun leika með Þrótturum í Lengjudeildinni.

Þróttarar hafa styrkt sig verulega fyrir tímabilið en hér fyrir neðan má sjá þá leikmenn sem félagið hefur fengið.

Komnir:
Atli Geir Gunnarsson frá Njarðvík
Franko Lalic frá Víkingi Ó.
Guðmundur Axel Hilmarsson frá Selfossi
Gunnlaugur Hlynur Birgisson frá Víkingi R.
Hafþór Pétursson frá ÍA (var á láni í fyrra)
Magnús Pétur Bjarnason frá Vængjum Júpiters
Sindri Scheving frá Víkingi R. (var á láni í fyrra)
Djordje Panic frá Bayern Alzenau
Dion Acoff frá SJK Seinäjoki
Esaú Martines Rojo frá AD Torrejon
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.