Gattuso kominn til Valencia (Staðfest)


Mynd: Getty Images


Mynd: Getty Images
Gennaro Gattuso er að taka við stjórnartaumunum hjá Valencia í spænska boltanum.
Gattuso er nýlentur á flugvellinum í Valencia til að skrifa undir tveggja ára samning við félagið.
Undanfarin ár hefur Gattuso þjálfað AC Milan og Napoli í ítalska boltanum en hann hefur tvisvar áður þjálfað utan landsteinanna. Fyrst stýrði hann Sion í Sviss og svo OFI Crete í Grikklandi.
Það bíður hans erfitt verkefni á Spáni þar sem Valencia, sem er í eigu Peter Lim, hefur ekki verið að ganga vel undanfarin ár og hefur ekki verið með í evrópukeppni síðan 2019.
Gennaro Gattuso has just arrived in Valencia to sign the contract until June 2024. Paperworks are already completed. 🦇🇮🇹 #Valencia
— Fabrizio Romano (@FabrizioRomano) June 8, 2022
Gattuso will be announced as new Valencia manager in the comong hours.
🎥⤵️ @SalvaGomis97 pic.twitter.com/SOaBUiuiNR
