Bayern Munchen ætlar sér að krækja í Sadio Mane í sumar. Fyrsta tilboði félagsins í Senegalann var neitað og nú berast fregnir af því að öðru tilboði hafi verið hafnað.
Bayern bauð 23,5 milljónir punda auk 6,5 milljónir í mögulegum bónusgreiðslur. Liverpool var ekki spennt fyrir bónusgreiðslunum og fannst þær óraunhæfar.
Bayern yrði að vinna Meistaradeildina þrisvar auk þess að Mane, sem er orðinn þrítugur, fengi þrisvar sinnum Ballon d´Or verðlaunin.
Liverpool vill fá tæplega 43 milljónir punda fyrir Mane og fyrsta tilboð Bayern var 21 milljón pund auk möguleika á fjögurra miljóna punda bónusgreiðslu.
Athugasemdir