Nissen Kristensen kominn til Leeds (Staðfest)


Mynd: EPA


Mynd: EPA
Leeds United er búið að staðfesta komu Rasmus Nissen Kristensen frá Red Bull Salzburg fyrir rétt rúmlega 10 milljónir punda.
Nissen er 24 ára hægri bakvörður frá Danmörku sem raðaði inn mörkunum með Salzburg á síðustu leiktíð þar sem hann skoraði tíu mörk og lagði upp átta.
Brentford og Dortmund sýndu Nissen áhuga en hann valdi að lokum að skipta yfir til Leeds. Nissen er annar leikmaðurinn sem Leeds fær í sumar eftir komu bandaríska miðjumannsins Brenden Aaronson sem skipti einnig yfir frá Salzburg.
Jesse Marsch, stjóri Leeds, kemur upp úr smiðju Red Bull og stýrði Salzburg frá 2019 til 2021 áður en hann tók við RB Leipzig. Hann þekkir því vel til Aaronson og Nissen, sem ætti að hjálpa aðlögunarferlinu.
Nissen var lykilmaður í yngri landsliðum Danmerkur og er nýlega búinn að taka stökkið upp í A-landsliðið.
🤩 #WelcomeRasmus pic.twitter.com/tALtALfbRf
— Leeds United (@LUFC) June 8, 2022
