Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   mán 08. júní 2026 12:34
Kári Snorrason
Víkingur framlengir við Ingvar (Staðfest)
Ingvar Jónsson.
Ingvar Jónsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ingvar Jónsson hefur framlengt samning sinn við Víking og er hann nú samningsbundinn félaginu út tímabilið 2027.

Ingvar berst nú við krabbamein og hefur því ekki leikið með félaginu í undanförnum leikjum.

Víkingur samdi við Ögmund Kristinsson á undanþágu frá KSÍ fyrr í dag og tilkynnti um framlengingu á samningi Ingvars samhliða því.

Tilkynning Víkings:
Knattspyrnudeild Víkings tilkynnir sömuleiðis að félagið hefur framlengt samning sinn við Ingvar Jónsson út árið 2027.

Öll Hamingjan sendir Ingvari og hans fjölskyldu baráttukveðjur og hlökkum sömuleiðis til að sjá hann sem allra fyrst í Hamingjunni.


Slapp
banner
banner
banner