08.07.13 - 18:57
Ívan Guðjón Baldursson
Holt kominn til Wigan (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Wigan Athletic er búið að staðfesta komu sóknarmannsins Grant Holt frá Norwich City.
Kaupverðið er óuppgefið og er Holt búinn að skrifa undir þriggja ára samning og er sjöundi leikmaðurinn sem kemur til félagsins frá komu Owen Coyle í stjórastólinn.

Coyle er ánægður með að hafa bætt leikmanninum í leikmannahópinn eftir sölu Arouna Kone til Everton fyrr í dag.
,,Þetta eru frábær viðskipti fyrir okkur á mjög kostulegu verði,\" sagði Coyle við vefsíðu félagsins.
,,Grant hefur sannað sig sem markaskorari í öllum deildum og mun eflaust koma til með að hjálpa okkur.
,,Hann hefur verið hetja í augum stuðningsmanna hvers liðs sem hann hefur spilað hjá og ég veit að stuðningsmenn Norwich vildu ekki að hann færi.\"
Holt skoraði fimmtán deildarmörk á fyrsta tímabili sínu með Norwich í efstu deild en skoraði aðeins átta mörk á síðasta tímabili sem Chris Hughton, stjóra Norwich, finnst ekki nóg.
Holt kom til Norwich 2009 en lék áður fyrir Rochdale, Nottingham Forest, Blackpool og Shrewsbury ásamt utandeildarliði Workington.