08.07.13 - 13:07
Daníel Freyr Jónsson
Mario Gomez í Fiorentina (Staðfest)

Mario Gomez.

Mynd: Getty Images

Mario Gomez.

Mynd: Getty Images

FC Bayern München hefur staðfest að þýski landsliðsframherjinn Mario Gomez sé orðinn leikmaður Fiorentina á Ítalíu.
Gomez hafði gefið út að hann vildi spila fyrir Fiorentina og útilokaði þar með möguleikann á að ganga í raðir Napoli, sem einnig hafði lýst yfir áhuga á honum.
Forsetar félagana gengu svo frá samningum í morgun og er Gomez því farinn frá Bayern eftir fjögurar ára dvöl.
Ekki er vitað hve hátt tilboð Fiorentina var, en forráðamenn Bayern hafa reynt að snúa hug Gomez og vildu að hann tki tilboði Napoli þar sem félagið myndi fá meiri pening þaðan.
Gomez ætlar hinsvegar að standa við loforð sitt.