08.07.13 - 19:21
Hafliði Breiðfjörð
Tryggvi Guðmundsson hættur í Fylki (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Tryggvi Guðmundsson er hættur í Fylki en þetta var staðfest í fréttatilkynningu frá félaginu og honum sjálfum rétt í þessu.
Mikið hefur verið rætt um Tryggva hjá Fylki að undanförnu en hann missti sætið sitt í liðinu og vann sér það svo aftur. Hann byrjaði leikinn gegn Stjörnunni í bikarnum í gær en var tekinn af velli. Eftir að hann var tekinn útaf sneri Stjarnan leiknum sér í hag og vann leikinn.
Tryggvi kom til Fylkis frá ÍBV í vetur. Hann spilaði tólf leiki fyrir félagið í deild og bikar og skoraði í þeim tvö mörk.

Yfirýsing Fylkis:
Knattspyrnudeild Fylkis og Tryggvi Guðmundsson hafa komist samkomulagi um að rifta samning hans við félagið.
Knattspyrnudeild Fylkis þakkar Tryggva fyrir hans framlag fyrir klúbbinn og óskar honum velfarnaðar í komandi verkefnum. Tryggvi þakkar einnig Fylki fyrir samstarfið og vonar að félagið muni rétta úr kúttnum það sem eftir er að tímabilinu.
Fyrir hönd Knattspyrnudeildar Fylkis
Ásgeir Ásgeirsson Formaður