08.07.14 - 13:59
Elvar Geir Magnússon
Jonathan Hendrickx til FH (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - J.L.

Mynd: Fótbolti.net - J.L.
Belgíski hægri bakvörðurinn Jonathan Hendrickx hefur skrifað undir samning við FH til tveggja ára, en hann kemur frá Fortuna Sittard í Hollandi.
Jonathan er tvítugur og er uppalinn hjá belgíska stórveldinu, Standard Liége. Meiðsli hafa herjað á bakverði Hafnarfjarðarliðsins á tímabilinu.
Hann fær leikheimild 15. júlí og gæti leikið sinn fyrsta leik í Pepsi-deildinni gegn Breiðabliki fimm dögum síðar.
,,Við erum mjög ánægðir með að fá Jonathan og hann er mjög góð viðbót við okkar hóp,\" sagði Birgir Jóhannsson, framkvæmdastjóri FH, á heimasíðu félagsins.
Jonathan skrifaði undir tveggja ára samning, en klásúla er í samningnum um að mögulegt er að framlengja honum um tvö ár til viðbótar.
Heimild: fh.is