Fotbolti.net
08.07.14 - 10:00
Magnús Már Einarsson

Ross McCormack til Fulham á 11 milljónir punda (Staðfest)

Ross McCormack.

Ross McCormack.

Canon

Mynd: Getty Images

Fulham hefur keypt framherjann Ross McCormack frá Leeds United.

Kaupverðið hefur ekki verið gefið upp en samkvæmt enskum fjölmiðlum hljóðar það upp á ellefu milljónir punda sem er ótrúleg fjárhæð fyrir félag í ensku Championship deildinni.

Hinn 27 ára gamli McCormack bað um sölu frá Leeds í síðustu viku en félagið hafði áður hafnað tilboði frá Fulham í leikmanninn.
Leeds neitaði einnig að selja McCormack til West Ham í byrjun árs en ellefu milljóna punda tilboðið var hins vegar of freistandi.

McCormack skoraði 29 mörk í öllum keppnum með Leeds á síðasta tímabili.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.