Fotbolti.net
08.07.14 - 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Ítalska deildin

Salih Ucan lánaður frá Fenerbahce til Roma (Staðfest)

Salih Ucan lánaður frá Fenerbahce til Roma (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Ítalska félagið AS Roma gekk ekki bara frá kaupunum á Ashley Cole í gær heldur fékk félagið einnig Salih Ucan frá tyrkneska stórliðinu Fenerbahce á tveggja ára lánssamning.
Ucan, sem er 20 ára gamall miðjumaður, gerði tveggja ára lánssamning við Roma í gær en Roma borgar Fenerbahce 4,75 milljónir evra fyrir lánið.

Roma á möguleika á því að framlengja lánið um eitt aukaár án þess að greiða fyrir það og þá getur ítalska félagið einnig keypt hann eftir tvö ár fyrir 11 milljónir evra.

Hann lék fimmtán leiki með Fenerbahce á síðustu leiktíð en hann var þó einungis tvisvar í byrjunarliði.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.