Fotbolti.net
08.07.14 - 09:39
Magnús Már Einarsson

Willy Caballero til Manchester City (Staðfest)

Willy Caballero.

Willy Caballero.

Canon

Mynd: Getty Images

Manchester City hefur keypt markvörðinn Willy Caballero frá Malaga en talið er að kaupverðið sé í kringum sex milljónir punda.

Þessi 32 ára gamli leikmaður skrifaði undir þriggja ára samning við Manchester City í morgun.
,,Þetta er ný áskorun og ný deild fyrir mig. Ég hef staðið mig vel undanfarin ár og vonandi næ ég að gera það líka hjá City,\" sagði Caballero.

Caballero mun berjast við Joe Hart um markvarðar stöðuna en Costel Pantilimon fór til Sunderland á dögunum.

,,Ég veit að ég er koma í stórt félag sem er með mjög góðan markvörð. City á frábæran markvörð í Joe Hart en ég ætla að reyna að berjast um byrjunarliðssæti. Ég mun gera mitt besta á æfingum.\"
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.